|
Fyrsta skrefið til að ganga í samfélagið okkar er að skrá sig. Ef þú ert að leita að leiðbeiningum um hvernig á að skrá sig í lokaða hópa þá eru þær hér. Það þarf að velja notandanafn(1.) og lykilorð(og staðfesta að það sé rétt skrifað)(3.), auk þess sem það þarf að fylla út tölvupóstfang(2.) og setja inn staðfestingarkóða(4.). Það að velja gott lykilorð, 8 stafi eða meira, ótengt fjölskyldu, vinum, gæludýrum, kennitölum eða hlutum í kringum tölvuna er mikilvægt til þess að enginn geti giskað á lykilorðið þitt og þannig skoðað einkapóstinn þinn eða sett inn þræði eða innlegg á spjallið í þínu nafni. Þó er ráðlegt að velja lykilorð sem þú getur munað, svo þú þurfir ekki að skrifa það niður.
(5.) Áður en þú getur haldið áfram ber þér að lesa notendaskilmálana, haka svo í "Ég samþykki" neðst á síðunni og ýtir á "Nýskráning"
Þegar þú hefur ýtt á "Nýskráning", þú verður notandinn þinn búinn til, en verður ekki virkur fyrr en þú hefur ýtt á tengil sem er sendur í tölvupósti á póstfangið sem þú gefur upp við skráningu. Ef þú lendir í vanda með skráninguna er hægt að hafa samband við stjórendur Draumabarna.
Hér á spjallinu erum við með ýmiskonar lokaða hópa. Meðal þeirra vinsælustu eru bumbu- og mömmuhóparnir okkar, en við erum með læsta hópa fyrir hvern mánuð frá mars 2009. Við erum einnig með hópa fyrir 2 mismunandi aldurshópa af ungum mæðrum, fyrirburamæður, tvíburamæður, konur yfir 30, eyjamömmur, suðurnesjagellur og stuðningshóp fyrir konur sem hafa misst börn eða fóstur. Ef þú vilt sjá hvort að einhver af okkar fjölmörgu hópum eigi við þig, þá má finna leiðbeiningar um skráningu í þá hérna.
|