Lokaðir hópar Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Aggeb   
Sunnudagur, 03 Maí 2009 00:00

Við erum með nokkra lokaða hópa og þú getur sótt um í þá sem þú telur þig tilheyra. Fyrsta skrefið er samt að skrá sig á spjallið, en leiðbeiningar um hvernig á að gera það má finna hér. Sérstakar reglur gilda um þáttöku í hópunum.

Í flestum hópum ber þér skylda til að gefa upp fullt nafn í kynningarþræði við inngöngu. Ef þú ert ekki tilbúin til þess, þá skaltu sleppa því að sækja um í hópinn.
Þetta á við hvort sem þú ert ólétt eða ekki, fyrir utan í bumbuhópunum, en þar má bíða til 15. viku með að gefa upp nafn. Sjá nánar í reglum um lokaða hópa.

Eins og á spjallinu öllu ríkir 100% trúnaður í hópunum. En einnig ríkir trúnaður innan hópana. Það sem rætt er um innan hópana má ekki ræða annarstaðar á spjallinu, hvorki á opnum hlutum þess né öðrum lokuðum hópum. Einnig gilda reglur um virkni. Notendur sem ekki taka þátt í spjallinu í hóp eru fjarlægðir úr honum.

Hóparnir eru:

  • Bumbu- og mömmuhópar eru skiptir eftir mánuðum og þú getur valið þann hóp sem þú átt að tilheyra miðað við settan dag eða fæðingadag barnsins. Athugið að skylda er að gefa upp fullt nafn í kynningarþráðum á 15. viku meðgöngu, en allar aðrar upplýsingar eru valfrjálsar.
  • '69 módel og eldri er fyrir konur fæddar 1969 eða fyrr.
  • '70 - '74 módel er fyrir konur fæddar á milli 1970 og 1974.
  • '75 - '79 módel er fyrir konur fæddar á milli 1975 og 1979.
  • '80 - '84 módel er fyrir konur fæddar á milli 1980 og 1984 og eru ekki í öðrum lokuðum hóp með aldursskilyrði.
  • '85 - '89 módel er fyrir konur fæddar á milli 1985 og 1989 og eru ekki í öðrum lokuðum hóp með aldursskilyrði.
  • '90 - '94 módel er fyrir konur fæddar á milli 1990 og 1994 og eru ekki í öðrum lokuðum hóp með aldursskilyrði.
  • '95 og yngri er fyrir konur fæddar eftir 1995 og eru ekki í öðrum lokuðum hóp með aldursskilyrði.
  • Ungar mæður er fyrir stelpur fæddar 1989 og seinna, eru ekki í öðrum lokuðum hóp með aldursskilyrði og fá meðmæli frá meðlim innan hópsins.
  • Drama Queens er fyrir stelpur fæddar milli 1984 og 1988, eru ekki í öðrum lokuðum hóp með aldursskilyrði og fá meðmæli frá meðlim innan hópsins.
  • Tvíburamömmur er fyrir allar þær sem eiga tvíbura sama á hvaða aldri þeir eru og fyrir þær sem eiga von á tvíburum. Þessi hópur er líka fyrir fjölburamömmur.
  • 30 ára + er fyrir allar þær sem að eru 30 ára og eldri og eru að reyna, eru óléttar eða eiga börn.
  • Fyrirburar er fyrir þær sem eiga börn fædd fyrir 37.viku meðgöngu.
  • 35 ára og eldri, með börn fædd 2009 er eins og nafnið bendir til fyrir konur eldri en 35 ára með börn fædd 2009.
  • Einstæðar mæður er fyrir einstæðar mæður og mæður sem eru ekki með barnsfeðrum sínum.
  • Eyjamömmur er fyrir mömmur frá Eyjum, bæði þær sem eru búsettar þar núna og þær sem eru brottfluttar.
  • Stjúpforeldrar er fyrir stjúpforeldra, hvort sem þeir eiga börn sjálfur eður ei.
  • Suðurnes er fyrir þær sem búa á Suðurnesjum.
  • Vestfirðir er fyrir þær sem búa á Vestfjörðum.
  • Ættleiðingar fyrir þá sem eru í ættleiðingaferlinu.

Í eftirfarandi hópum þarf ekki að gefa upp nafn:

  • PCOS fyrir konur með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni.
  • Englarnir okkar er stuðningshópur fyrir þær sem hafa misst fóstur eða börn bæði á meðgöngu eða eftir meðgöngu.
  • Memma er fyrir konur sem hafa meðvitað ákveðið að eignast barn einstæðar með aðstoð sæðisgjafa eða pabba.

Til þess að sækja um þarftu fyrst að skrá þig á spjallið ef þú ert ekki notandi nú þegar. Þegar þú ert á spjallinu ferðu í Profile (1.) og þar í Skráning í læsta hópa(2.). Þar velurðu hópinn sem þig langar að komast í og ýtir á Sækja um aðgang tengilinn.

Lokaðir hópar

 

Þegar það kemur upp gluggi þar sem stendur Request Group Membership þarftu að svara eftirfarandi spurningum. Nauðsynlegt er að setja nafn í umsóknina í hópum þar sem notendum ber að koma fram undir nafni, aldur er nauðsyn í aldurskiptum hópum og fæðingardagur eða áætlaður fæðingardagur í bumbu- og mömmuhópum. Aðrar upplýsingar eru valfrjálsar.

Fyrir þær sem eru óléttar:
Nafn:
Afmælisdagur og ár:
Áætlaður fæðingardagur barns:
Staðsetning:
Msn:
Heimasíður:
Annað:

Fyrir þær sem eru búnar að eiga:
Nafn:
Afmælisdagur og ár:
Nafn barns og fæðingardagur:
Staðsetning:
Msn:
Heimasíður:
Annað:

Öllum notendum er skylt að kynna sig í kynningarþráðunum eftir að umsóknin í hópnum hefur verið samþykkt.

LAST_UPDATED2
 
© 2008 Draumabörn. Öll réttindi áskilin. Powered by Joomla! and template originally designed by SiteGround web hosting and modified by Emil Friðriksson.